Samherjar

„Maður talar ekki illa um þá sem keppa um sama sæti í prófkjöri, því á endanum erum við samherjar. Stefnum að sama marki.“

Eitthvað á þessa leið var boðskapur mannsins sem hringdi í kvöld til að tala fyrir sínum frambjóðanda.

Hann hafði skýra sýn: Við keppum að sama marki. Við viljum öll það sama.

Ég kann að meta svona frambjóðendur.

Ég kann að meta frambjóðendur sem sjá heildarmyndina, stilla sér ekki upp gagnvart öðrum sem andstæðingar eða óvinir væru, hafa skýra sýn á valddreifingu, vilja hlusta og vera sanngjarnir.

Þannig er það bara.

Monday, January 25, 2010