Norska verðlaunamyndin Sammen (Matias Armand Jordal: 2009) verður sýnd í kirkjubíói í Langholtskirkju fimmtudaginn 4. febrúar. Sýningin hefst kl. 20 og hún er öllum opin. Ég held utan um sýninguna með Jóni Helga Þórarinssyni sem er sóknarprestur í Langholtskirkju. Við hittumst í kirkjunni í gær til að prófa búnaðinn og þá fékk ég m.a. að sjá sýningartjaldið í kirkjunni sem mun vera eitt stærsta frístandandi tjald á landinu ;)
parsprima
Your awesome tagline

